La popularité de ce livre sur Gleeph
Résumé
Enginn veit hvaðan Mómó kemur, hún býr í rústum hringleikahúss, er munaðarlaus og á enga nána fjlskyldu en hún er vinmrg vegna hæfileika hennar; að hlusta á aðra. Þegar grámennirnir mæta á heimaslóðir hennar og taka yfir borgina kemur í ljós hversu einstkum eiginleikum Mómó býr yfir. Grámennirnir stela tíma frá íbúum borgarinnar, þeir þykjast ætla að ávaxta tímann eins og banki en þegar fólk hefur látið tíma sinn í þeirra hendur gleymir það grámnnunum samstundis. Mómó gleymir þeim ekki og ásamt meistara Hora og skjaldbkunni sem sér fram í tímann berst Mómó gegn tímaþjófunum. Michael Ende (1929-1995) er einn þekktasti barnabókahfundur Þýskalands, eftir hann liggur fjldi verka sem hafa verið þýdd á yfir 40 tungumál. Hann ólst upp við hrmungar heimsstyrjaldarinnar síðari sem hafði mikil áhrif á skrif hans og þurfa persónurnar í sagnaheimi hans oft að takast á við ógnir og óréttlæti til að hið góða megi sigra. Skáldskaparheimur Michaels Ende er oft og tíðum súrrealísk blanda af raunveruleika og fantasíu og hfðar jafnt til barna sem fullorðinna. Þekktustu verk Michaels Ende eru Mómó og Sagan endalausa.